![]() |
|
|
|
Bragi Þór Jósefsson er fæddur í Reykjavík 1961. Hann lauk prófi í ljósmyndun frá Rochester Institute of Technology í New York, Bandar’kjunum 1986 og hefur síðan unnið við ljósmyndun að meira eða minna leyti. Hann er á samningi við tímaritaútgáfuna Fróða og myndar reglulega í tímarit þess svo sem Vikuna og Mannlíf en einkum þó Hús og hýbýli. Einnig myndar hann fyrir ýmsa aðila sem lausamaður, t.d. ýmsar arkitektastofur, og tekur að sér hverskyns ljósmyndaverkefni. Bragi hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og hlotið ýmsar viðurkenningar, t.d. Besta tímaritamyndin á árlegri samsýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands 2003 og Besta landslagsmyndin á sömu sýningu 2002. Nordicphotos.com er söluaðili fjölda mynda Braga. Bragi var formaður Ljósmyndarafélags Íslands
1996-1999. |